Text písně Nydonsk: Strákarnir Stofnuðu Hljómsveit

Strákarnir Stofnuðu Hljómsveit


Sören, Palle, Knud og jeg stofnuðum hljómsveit
Það var þykkni og þoka á Þykkvabæjaströndum á kvöldin
Með páku og poka og þriggjahljómaþrígrip að þeysa
á kartöfluslóðir við sveitunga svera að keppa
Í kapphlaupi við tímann og klukkuna á Hvoli við keyrðum
Í leynimúla við lokkandi ljósamynstur
:,: Splæst var á línuna sóda-poppi og pylsum :,:
Viðlag:
Strákarnir stofnuðu hljómsveit
Þeir gengu bar' allt of langt
Á leiðinni miðri mótormaskínan mæddist
Nú þykkbotna skó á brauðfætur fast voru bundnir
Gengum hvar Göngu-Hrólfur hrasaði forðum
Og séra Þangbrandur þrumaði í krossfara kristnum orðum
Viðlag
Snögglega snældunni snérum við snarlega við
í fimbulfögrum fjallasal við sáum
Hvar Rúnar rösklega með rafmagnsgígjuna reið
Og beljandi bassinn og tromman frá Bárðadal bárust
Viðlag







Captcha