Hrognin Eru Að Koma


Hrognin eru að koma, gerið kerin klár,
hrognin eru að koma, gerið kerin klár
Setjið dælurnar í samband, takið svo seglin frá
Hrognin eru að koma gerið kerin klár

Vinnið nógu mikið, peninga munuð þið fá,
vinnið nógu mikið, svo verki niður í stórutá
Það er hagur þeirra að ykkur flökri
þegar hugsun ykkar fer á stjá
Vinnið nógu mikið og peninga munuð þið fá

Uppá verbúð blómstrar menningin,
komið og þið munuð sjá
slagsmál, ríðingar, fyllirí,
Jack London horfa á
Engin pólitísk slagyrði, Maó myndir veggjum á
þá færðu reisupassann vinur minn,
staðnum verður, staðnum verður frystur frá

Stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn,
ykkar er jú hagurinn, hagurinn ekki hússins
Það vita þeir og þjarma á ykkur refsibónusinn,
það er, - það er allur munurinn

Stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn
Stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn
Stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn……







Captcha
The Bubbi Morthens Hrognin Eru Að Koma are brought to you by Lyrics-Keeper. You can use lyrics widget for karaoke. We tried to make lyrics as correct as possible, however if you have any corrections for Hrognin Eru Að Koma lyrics, please feel free to submit them to us. If you want to download this song in mp3 you can visit one of our music sponsors.