Hefnd


Tindinum náð, titrar þar jörð undir fótum.
Takmarkið þráð, glyrnurnar sýnir og klær, og hann hlær.
Himinn ber við, hærra en drögum við spjótum.
Höður, ég bið, mistiltein Loka mér fær, hann einn nær.

Hlaupið er á vopnin þau glitra og glóa.
Gefjuni frá, herklæðin óvenju þétt, fjaðurlétt.
örlagastund, undir eins byrjar að snjóa.
Undir þá grund, skelfir hvern bölvaðan blett, sérhvern kltt.

öxina keyri ég niður í skítugan skrápinn,
Skil hana eftir í undinni grafna á kaf.
Getinn af Niflheimi, geldur þú fyrir öll drápin.
Goðin í nótt þangað fylgja við stjárnanna traf.

þrumunnar Þór,
Eitt sinn ég þér mína hollustu sór.
þú ert mitt goð, stytta og stoð,
Heljar við styrjöldum hef ekki roð.
Gættu mín vel, hleyp ég mót Hel,
þar leynast hættur í sérhverjum mel.
Allt getur gerst, Baldur nú berst,
VerðI það banamein, sáttur ég ferst.

Baldur, þú mér banar,
Barðist vel og Þór veitti lið.
Ffl að verkum flanar,
Fer ég nú um Niflheimahlíð.

Deyja allir mínir árar,
örlög dís á kálfskinn párar.
Svartar nætur,
Svíkja fætur,
Svíður hönd er vatnið gárar.

Sár er ég og sár ert þú,
Sárir göngum burtu nú.
Mið- í garðI,
MinnisvarðI
Rís í ásatrú.







Captcha
The Skalmold Hefnd are brought to you by Lyrics-Keeper. You can use lyrics widget for karaoke. We tried to make lyrics as correct as possible, however if you have any corrections for Hefnd lyrics, please feel free to submit them to us. If you want to download this song in mp3 you can visit one of our music sponsors.