Текст песни Bubbi Morthens: Við Gróttu

Við Gróttu


Í rauðbláu húmi sólin sest niður,
yfir sjónum er miðnæturfriður,
þar er vitinn sem vakir allar nætur
Varlega aldan snerti okkar fætur
Sporin í sandinum hverfa eins og árin,
eins hefur gróið yfir gömlu sárin

Og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég,
og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég

Dimmblá skýin skreyta sjónarhringinn
Þú skoðar sem barnið þarabynginn
og hlátur þinn fyllir mig fögnuði þess,
sem finnur að lífið hefur valið honum sess,
við hlið hennar allt þar til lífinu lýkur
Að lifa með henni það er að vera ríkur

Og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég,
og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég,
jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég

Svo loka ég augunum örlitla stund,
augnablikið á sinn hljóðláta fund
og hjartað hvíslar ástin er göldrótt,
og hafið verður eitt augnablik hljótt
ást okkar er orðin stór og sterk
Ég elska þig mitt fallega furðuverk

Og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég,
og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég,
og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég,
jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég







Captcha
Песня Bubbi Morthens Við Gróttu представлена вам Lyrics-Keeper. Виджет можно использовать в качестве караоке к песне Við Gróttu, если есть возможность скачать минусовку. Для некоторых композиций доступен правильный перевод песни. Мы стараемся сделать так, чтобы слова песни Við Gróttu были наиболее точными, поэтому если у вас есть какие-то корректировки текста, пожалуйста отправляйте их нам. Если вы хотите скачать бесплатно эту песню в формате mp3, посетите одного из наших музыкальных спонсоров.