Stál Og Hnífur


Þegar ég vaknaði um morguninn
er þú komst inn til mín
Hörund þitt eins og silki
andlitið eins og postulín
Við bryggjuna bátur vaggar hljótt,
í nótt mun ég deyja
Mig dreymdi dauðinn segði komdu fljótt
það er svo margt sem ég ætla þér að segja

Ef ég drukkna, drukkna í nótt,
ef þeir mig finna
Þú getur komið og mig sótt
þá vil ég á það minna

Stál og hnífur er merki mitt
merki farandverkamanna
Þitt var mitt og mitt var þitt
meðan ég bjó á meðal manna







Captcha