Sól


Fuglarnir fá sér kríu í laufguðum trjánum,
Stíga ekki í vitið, skítugir á tánum
Fiðrildin breiða út vængi sína á förnum vegi,
Fá flugu í höfuðið á góðum degi
Viðlag:
Sól! Bjóddu mér blíðu þína,
Gefðu mér byr undir báða vængi
Vorboðar háloftanna,
Fljúga í hópum um varplendi hugans
Smjörið drýpur af blómunum, vætla ofan í svörðinn
Gamli maðurinn fær sér vatn, & rotar vörðinn
Grasið teygir sig hátt til himna, grænkar & grær,
Horfir á mig klámaugum klórar sér & hlær
Viðlag







Captcha