Eltu Mig Uppi


Næturkulið krafsar í mig
Keyrir allt í kaf
Langur skuggi engu líkur
Læðist út á haf
Hvergi banginn keyri ég og
Kætist yfir því
Sem ég á í vændum síðar
—sem ég stefni í

Mikið var ég feginn því að
Lifa þessa nótt
Furðulegt þó hvernig fannst mér
Tíminn fljúga fljótt
Mikið var að vökvar mínir
Vættu þessa sál
Eigðu við mig erindi á ný
—Eltu mig uppi
í nótt

Morgunbirtan bítur í mig
—býður góðan dag
Litlir fuglar fyrir utan
Flauta lítið lag
Tólf mínútur yfir og ég
Undra mig á því
Sem ég finn við síðu mína
—sem mig heldur í

Ekki líta undan,
Ekki beygja af leið
Ekki tapa slóðinni, já ekki týna mér
Ekki týna mér í nótt







Captcha
Widget