Trúnaðargoðin


Lítur upp til goðanna,
Miðar sig við,
Fyrirmyndirnar
Lítur upp til stjarnanna,
Leggur sig fram við að
Laga ímyndina
Hvernig getur staðið á því
Að það fyrirfinnist enn
þeir sem virðast búa í Ásgarði
En sitja í Valhöll, sem lifandi menn
Ef ég get orðið eins og þeir,
þá þarfnast ég einskis meir
Ef ég get orðið eins og þeir,
Óðinn, Þór og Freyr
Sem býr í Álfheimi,
Stjórnar okkar frjósemi
Með reðurstærðinni
Ég gæti kynnst Gefjunni,
Sem geymir þær sem deyja
í hreinum meydómi
Hvernig getur staðið á því
Að það fyrirfinnist enn
þeir sem virðast búa í Ásgarði
En sitja í Valhöll, sem lifandi menn
Ef ég get orðið eins og þeir,
þá þarfnast ég einskis meir
Ef ég get orðið eins og þeir,
Óðinn, Þór og Freyr
Ef ég get orðið eins og þeir,
þá þarfnast ég einskis meir
Ef ég get orðið eins og þeir,
Óðinn, Þór og Freyr
Sem býr í Álfheimi,
Stjórnar okkar frjósemi
Með reðurstærðinni







Captcha