Sangtekster for Sálin Hans Jóns Míns: Á Tjá Og Tundri

Á Tjá Og Tundri


Allt er á tjá og tundri
Get ekki fötin mín fundið
Ei hissa þó þig undri
Er svipur hjá sjónu?
Framlágur er heldur kappinn
Floginn um hvippinn og hvappinn
Ég verð að safna í sarpinn
Og sofa hjá Jónu

Ég bið um frið, æ gef mér grið
Ég verð að hvílast stundarkorn
Ó, ekki meir, ég er eins og leir
Ég spyr: Færðu aldrei nóg?

Nú er ég farinn
Meinilla farinn og búinn að vera
Þverrandi þor, ekkert hægt að gera
Nú er ég farinn!

Með hausgarminn undir hendi
Ég henni tóninn minn sendi
Veit ekki hvar ég lendi
Ég er loðinn um nárann
Nú finnst mér mál að linni
Verð ekki lengur hér inni
Ég vona bara að hún finni mig ekki í fjöru

Ég bið um frið

Nú er ég farinn







Captcha
Widget