Dauði


Ligg ég, lek mín sár,
Lopinn kólnar minn nár.
Dauðinn dregur mig nær,
Dettur yfir mig snær.

Lið mitt liggur hjá mér,
Látin hersingin er.
Hetjur höfðu það af,
Hefndin frið okkur gaf.

Hinsta dreg ég andardráttinn,
Drengur Óðins missir máttinn.
Sortinn teygir sína arma,
Sól úr austri kastar bjarma.
Loksins reiðI lægja öldur,
Laskað sverð og brotinn skjöldur.
Bros á varir Baldurs færist,
Bræðralagið aldrei tærist.

Vígamaður Baldur Óðinsson!

Gunnar jarl og Grímur deykja,
Guðirnir þá munu heygja.
Vargurinn í valinn beygður,
Verður seint af nokkrum heygður.
Brosi nú til barna minna,
Brátt mun öllum sorgum linna.
Kæra sé ég konu mína
Kúra upp við syni sína.

Nú er ekki neinn sem lifir,
Nóttin hellist kolsvört yfir.
Líf í Baldurs auga blikar,
Bíður dauðinn, aðeins heikar.
Upp er runnin stóra stundin,
Stöðvast allt við hinsta blundinn.
Blæs úr norðri, bærast stráin,
Baldur er nú loksins dáinn.







Captcha
La chanson Skalmold Dauði est présentée par Lyrics-Keeper. Vous pouvez utiliser widget en tant que karaoké de la chanson Dauði si vous avez la possibilité de télécharger le phonogramme(.mid ou .kar files). Pour quelques chansons nous avons la traduction exacte des paroles. Ici vous pouvez télécharger la traduction de la chanson Skalmold Dauði. Nous voudrions que les paroles de la chanson soient très correctes, donc, si vous avez quelques corrections, envoyez-les nous s’il vous plaît. Si vous voulez télécharger gratuitement la chanson Dauði au format mp3, vous pouvez le faire chez l’un de nos sponsors musicaux.