Skuggar í skjóli nætur
Skjóta rótum sínum hér
FarðI og fjaðrahamur
- Allt svo framandi er
Fyrirheit enginn á
- aðeins von eða þrá
Svo á morgun er allt liðIð hjá
Sviti og sætur ilmur
Saman renna hér í eitt
Skyrta úr leðurlíki
Getur lífinu breytt
Fyrirheit enginn á
- aðeins von eða þrá
Tíminn fellur í gleymskunnar dá
Fyrirheit enginn á
- aðeins drauma og þrá
Svo á morgun er allt liðIð hjá
Hérna er allt sem hugurinn gæti girnst
- já, og eðalguðaveigar
Nóttin er ung og hún Iðar í takt við þig
Allt getur gerst - og eflaust gerist það víst
Bara bruggið ef þú teigar
Svo er svifið þöndum vængjum
- svo er svifið þöndum vængjum
Sódóma
Holdið er hlaðIð orku
Hafið yfir þína sýn
Drjúpa af dimmum veggjum
Dreyri, vessar og vín
Fyrirheit enginn á
- aðeins von eða þrá
Lífið fellur í gleymskunnar dá
Fyrirheit enginn á
- aðeins drauma og þrá
Svo á morgun er allt liðIð hjá