ég hef haldið mig á mottunni
ég hef þraukað í þúsund ár
Sé þig hverfa sí og æ
Sé þig birtast en aldrei fæ
Að koma höndum yfir þig
þú ert það sem allir vilja eiga
þú ert það sem allir vilja fá
Sama hvert ég miða skot mín geiga,
- sama hvar ég reyni í þig að ná
þú ert það sem þíðir kaldan klaka
þú ert það sem kveikir í mér bál
Bara ef þú vildir með mér vaka,
- bara ef þú þæðir mína sál
Ertu hilling eða hugrenning?
Ertu 100000 volt?
Má ég finna fyrir þér
því ég þreyttur orðinn er
Af því að fá ekki að njóta þín
þú ert það sem allir vilja eiga
þú ert það sem allir vilja fá
Sama hvert ég miða skot mín geiga,
- sama hvar ég reyni í þig að ná
þú ert það sem þíðir kaldan klaka
þú ert það sem kveikir í mér bál
Bara ef þú vildir með mér vaka,
- bara ef þú þæðir mína sál