Þig Bara þig


ég veit ei lengur hvað má stóla á
- ég treysti þér sem nýju neti
Níðsterkar taugar til þín bar ég þá
Og geri enn
Um miðja nótt ég hvart úr huga þínum
- hvarf og ekkert skjól ég fann
En nú á ný ég beiti kröftum mínum,
Hamstola ég er

í kvöld ég verð að fá að finna fyrir
Fiðurmjúkum örmum þínum
í kvöld ég verð að fá þig aftur yfir
- þig bara þig
það sköpum getur skipt að endurheimta
þær stundir sem að átti ég með þér

ég velti vöngum -enn þeir eru hér
Baugarnir sem bárum bæðI
þinn baugur ennþá býr í brjósti mér
Fangelsaður
ég ráfa um og reyni að drekkja sorgum
áttavilltur, auðnulaus
Ef ekki í dag, þá ef til vill á morgun
þú munt tigna mig

í kvöld ég verð að fá að finna fyrir
Fiðurmjúkum örmum þínum
í kvöld ég verð að fá þig aftur yfir
- þig bara þig
það sköpum getur skipt að endurheimta
þær stundir sem að átti ég með þér







Captcha
Widget