Árás


Kvöld, úr norðri kólna fer.
Kemur yfir heiðar:
Vængjasláttur, vætta her,
Varúlfar til reiðar.

ég reið yfir landið mitt, reri' út á fjörð.
Rólegur sjórinn, ég lofaðI Njörð
í ljósanna skiptum ég leit upp í Skörð,
Ljót var sú sýn er mér mætti.

Kom yfir brúnina kolsvartur her,
ég kúventi bátnum og hraðaðI'mér.
Vængirnir steinrunnir, vígtannager
Og væl sem nú kyrrðina tætti.

Skugga hann varpaðI, skelfileg sjón.
Skálmöld var risin og mikið varð tjón.
DrukknaðI þannig mín dýrasta bón,
Drepið var allt sem ég unni.

Verja þau átti en var til þess seinn,
Viti menn, lifandi eftir ei neinn.
Ataður svörður sem áður var hreinn,
Allt mitt var hrunið að grunni.

ég sá:
Barnið mitt tætt, blóðugt og hrætt.
ég sá:
Barið á húsgripum mínum og ætt.
ég sá:
Saklaust blóð, fljóta um fljóð.
ég sá:
Fjölskyldu slátrað sem var mér svo góð.

ég sá:
Deyja mær, dæturnar tvær.
ég sá:
Dreyrrauðar klærnar sem læstust í þær.
ég sá:
Visna jurt, var einhvers spurt?
ég sá:
Vágestinn glotta og halda á burt.

Gekk um garð,
Gríðarskarð,
Höggvið hart,
Hel mig snart.
Vængjuð vá,
Vargur sá
Nafn hans nefnt,
Nú skal hefnt

Heit er gefið, heit sem verður efnt.







Captcha
La chanson Skalmold Árás est présentée par Lyrics-Keeper. Vous pouvez utiliser widget en tant que karaoké de la chanson Árás si vous avez la possibilité de télécharger le phonogramme(.mid ou .kar files). Pour quelques chansons nous avons la traduction exacte des paroles. Ici vous pouvez télécharger la traduction de la chanson Skalmold Árás. Nous voudrions que les paroles de la chanson soient très correctes, donc, si vous avez quelques corrections, envoyez-les nous s’il vous plaît. Si vous voulez télécharger gratuitement la chanson Árás au format mp3, vous pouvez le faire chez l’un de nos sponsors musicaux.